148. löggjafarþing — 7. fundur,  21. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[16:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar á þskj. 71 og breytingartillögur fylgja á þskj. 72. Nefndarálitið er um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018 sem við köllum, svona okkur til hægðarauka, bandorm.

Nefndin hefur reynt að fara eins vel yfir frumvarpið og hægt er og fengið til þess aðstoð ýmissa gesta eins og kemur fram í nefndarálitinu. Við gerum tillögu um nokkrar breytingar á frumvarpinu. Ég ætla að vekja athygli hv. þingmanna á þeim sem helstar eru. Nokkrar eru tæknilegar, en það er þó fyrst að nefna að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar telur rétt að samhliða því að skatthlutfall fjármagnstekna er hækkað úr 20% í 22% verði frítekjumark hækkað úr 125 þús. kr. í 150 þús. kr. Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum fengið frá ríkisskattstjóra felur þessi breyting í sér að skattgreiðslur meginþorra fólks af vaxtatekjum lækka þrátt fyrir að skatthlutfallið sé að hækka. Þetta á fyrst og fremst við um fólk sem á einhvern örlítinn sparnað og nýtur þar af leiðandi vaxtatekna; einstaklingur 400 þúsund, hjón 800 þúsund, þau eru þá jafnsett. Þeir sem eru með lægra eru þá aðeins betur settir. En allir aðrir greiða töluvert hærra. Þetta teljum við að sé skynsamlegt enda ekki ætlun ríkisstjórnar að íþyngja venjulegu launafólki með breytingum af þessu tagi.

Samhliða því er nauðsynlegt að hækka og gera breytingar á 1. mgr. 2. gr. laga um tekjuskatt til að samræma skattprósentu í tekjuskatti. Það á við um aðila sem stunda starfsemi hér. Þetta á líka við um samlagsfélög og fleira. Þannig að það myndist ekki skattalegt hagræði að vera t.d. með samlagsfélag. Þess vegna er lagt til að skattprósenta sé hækkuð úr 36% í 37,6% eins og skýrt er í nefndarálitinu.

Við gerum líka tillögu um að í 2. mgr. 3. gr. laga um vörugjöld af ökutækjum komi inn að ökutæki knúin með metani verði jafnsett og þau sem eru með metanóli. Þessi breyting er í rauninni í samræmi við þingsályktun um aðgerðaáætlun um orkuskipti sem samþykkt var 31. maí sl. þar sem bent var á, og segir orðrétt, með leyfi forseta: „Bifreiðar verði að mestu knúnar metanóli af endurnýjanlegum uppruna ...“ og svo koma tækniorð þar. Þess vegna leggjum við þetta til, smávægilega breytingu sem hefur lítil sem engin áhrif á tekjur ríkissjóðs.

Varðandi frítekjumark atvinnutekna hjá almannatryggingum þegar kemur að eldri borgurum er verið að hækka það verulega, eða úr 25 þús. kr. í 100 þús. kr. samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar fagnar þessu. En við beinum því um leið jafnt til fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem velferðarráðuneytis að skoðað verði að æskilegt sé að til frambúðar verði frítekjumark lífeyrisgreiðslna og atvinnutekna það sama. Að það sé verkefni hérna, vonandi strax á komandi ári þegar við tökum til við gerð fjárlaga 2019, að hækka frítekjumörk lífeyrisgreiðslna með svipuðum hætti og við erum að gera núna þegar kemur að atvinnutekjum. Þetta er réttlætismál. Þetta er hins vegar aðgerð sem felur í sér töluvert aukin útgjöld hjá ríkissjóði en er til þess að gæta jafnræðis milli eldri borgara.

Við erum líka með ábendingu um að huga þurfi að skattalegum hvötum þegar kemur að vistvænum almenningssamgöngum. Það er aftur líka í samræmi við áðurnefnda aðgerðaáætlun um orkuskipti. Við töldum ekki að tök væru á að breyta ákvæðum í frumvarpinu hvað þetta snertir, en við teljum hins vegar mikilvægt að þetta sé skoðað strax á komandi ári og þannig byggður upp hvati til að stuðla að vistvænum samgöngum í almenningssamgöngum en einnig þegar kemur að ferðaþjónustu.

Einnig er vert að vekja athygli á því að í umsögn Viðlagatryggingu Íslands er bent á að Viðlagatryggingu er gert, samkvæmt gildandi lögum, að greiða fjármagnstekjuskatt sem öðrum er ekki gert að gera, öðrum stofnunum okkar, svo sem Byggðastofnun, Íbúðalánasjóði o.s.frv. Þetta rýrir auðvitað stöðu Viðlagatryggingar sem við öll vitum hversu mikilvæg getur verið, þótt við biðjum þess öll að við þurfum ekki að láta reyna á viðlagatryggingar en þá gerist það, því miður. Það er nauðsynlegt að breyta þeim lögum að mati meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar og einnig þarf að skoða í framhaldi hvernig staðið er að ákvörðun í gjaldskrá Fjármálaeftirlitsins þannig að gjaldskráin endurspegli með betri hætti en nú er það umfang sem eftirlitið þarf, sem fólgið er í eftirlitinu gagnvart einstökum fyrirtækjum. Þetta á t.d. við um Viðlagatryggingu Íslands, sem er tiltölulega einfalt fyrirtæki og kallar ekki á mikla vinnu hjá Fjármálaeftirlitinu og kann að vera að skynsamlegra væri að það sé frekar föst krónutala sem slíkum stofnunum væri gert að greiða heldur en með þeim hætti sem gert er í dag.

Ég vil líka vekja athygli á því að nú um áramótin, að óbreyttu, mun falla úr gildi 1. mgr. 57. gr. b-liðar laga um tekjuskatt, þar sem eru sett takmörk á heimildir lögaðila til að draga frá skattskyldum tekjum vaxtagjöld og afföll vegna lánaviðskipta tengdra aðila. Við teljum að nauðsynlegt sé að gera breytingar til að koma í veg fyrir að fyrirtækjasamstæður verði fyrir auknum kostnaði eða óhagræði vegna þessa. Þetta hefur ekkert með skatttekjur ríkisins eða skattgreiðslur viðkomandi fyrirtækja að gera. Þetta er aðeins um það að þegar móðurfélag ákveður að taka lán, efna til skuldabréfaútboðs eða hvaða háttur er hafður þar á, geti dótturfélag sem er starfandi á Íslandi, þetta eru fyrirtækjasamsteypur starfandi innan lands, dregið frá vaxtatekjurnar. Ef ákvæðið fellur úr gildi og ekki neitt kemur í staðinn verða þessar vaxtatekjur skattskyldar hjá móðurfélaginu. Það er óeðlilegt og er ekki tilgangur löggjafans, og er til þess að fyrirtæki munu beita öðrum og óhagkvæmari aðferðum við fjármögnun til samsteypunnar í heild. Dótturfélag fer þá sjálft út á markað í stað þess að móðurfélagið í krafti samsteypunnar geri það og nái hagstæðari kjörum. Þetta er eðlilegt og við bíðum eftir því að taka málið upp á milli 2. og 3. umr. í efnahags- og viðskiptanefnd og eigum von á að leggja fram breytingartillögu þegar 2. umr. hefst svo þingheimur viti af því.

Síðan eru nokkrar tæknilegar breytingar sem við leggjum til. Menn geta kynnt sér þær betur í nefndarálitinu.

Herra forseti. Svo það sé sagt hefur sá er hér stendur aldrei verið sérstakur talsmaður þess að hækka skatta, hefur nú fremur talað fyrir því að ríkisvaldið slaki aðeins á klónni, lofi launafólki að halda aðeins meiru eftir í launaumslaginu en það gerir. Hér er verið að leggja til nokkrar skattahækkanir, m.a. fjármagnstekjuskatt, sem er auðvitað mjög kvikur skattstofn og menn þurfa að fara mjög varlega þegar þeir hreyfa skattprósentuna þar. Á móti kemur að mikil og góð samstaða var í meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að vinna aðeins á móti þessari hækkun með því að hækka frítekjumarkið þannig að a.m.k. langflest venjulegt launafólk yrði ekki fyrir búsifjum vegna þessa. Í raun leiðir það til þess að skattbyrðin lækkar örlítið, ekki mikið en örlítið. Síðan eru kolefnisgjöldin hækkuð samkvæmt því frumvarpi sem hér liggur fyrir, ekki eins mikið og fyrri ríkisstjórn ætlaði að gera og ég mótmælti þeirri hækkun í ræðustól, ef ég man rétt 15. september sl. En það er nú þannig að í stjórnmálum þarf maður stundum að gera málamiðlanir og átta sig á hvernig maður getur þokað sínum áherslumálum áfram. Ég segi: Það er þó búið að gefa okkur loforð í stjórnarsáttmálanum um að lækka tekjuskatt í neðra þrepi, vonandi á komandi ári, sem tæki þá gildi 2019. Og síðan er spurningin um að halda áfram að lækka tryggingagjaldið sem skiptir auðvitað verulega miklu máli. Ég hef hins vegar fullan skilning á að menn þurfi að sjá hvernig staðan verður á nýju ári varðandi niðurstöður kjarasamninga.

Mér finnst rétt að taka þetta fram í framsögunni þótt þetta sé framsaga meiri hluta. Það er ljóst að betra hefði verið fyrir okkur að gera allar þær skattkerfisbreytingar sem við höfum hug á að gera kannski í einu lagi, en það eru hvorki aðstæður né sanngjarnt að ætlast til þess að það sé gert á þeim tíma sem við höfum núna.

Herra forseti. Ég tel að það sé að öðru leyti ljóst og liggi fyrir afstaða meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar og þær breytingartillögur sem hér eru gerðar. Þær sem ég hef ekki farið yfir eru fyrst og fremst tæknilegar en ég vil þó vekja athygli á að verið er að gera ákveðnar breytingar á gjaldskrá Útlendingastofnunar, sem kemur í ljós að eru í einhverjum tilfellum nokkru hærri en verðlag. Það eru skýringar þar að baki. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við það.