breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.
Virðulegi forseti. Ég ætla að freista þess að ræða hér smávegis um pólitík en líka efnahagspólitík. Ég hef mikinn áhuga á því hvernig hið svokallaða vinstri og hið svokallaða hægri bregst misjafnlega við þróun hagkerfisins. Við pólitíkusar erum náttúrlega með misjafnar skoðanir í þeim efnum, bæði eftir því hvar við stöndum í pólitík en eins hefur mér sýnst svolítið eftir því hvað stendur til að gera.
Ég velti fyrir mér þessu með topp hagsveiflunnar. Það er eitt af því sem við fengum aldrei færi á að ræða í nefnd. Það er svo sem líka meira við hæfi að við ræðum það hér. Ef við erum á toppi hagsveiflunnar núna, og ég geri ráð fyrir ákveðnum keynesisma án þess að vilja fara út í allar pælingar þess ágæta manns, þurfum við þá ekki að bregðast við núna eins og við séum komin í niðursveifluna? Þurfum við ekki núna að huga að hlutum eins og t.d. að hækka persónuafslátt? Það var ein af tillögunum sem komu frá mínum flokki í kosningabaráttunni, með þeim fyrirvara að allar svona ákvarðanir eru háðar aðstæðum, eins og við tilgreindum skýrt þá. Það var ekki kosningaloforð, það voru kosningatillögur og eru til umræðu. Þess vegna finnst mér mikilvægt að við ræðum þær hér.
Allir virðast vera sammála um að við séum á toppi hagsveiflunnar. Þess vegna finnst mér skrýtin varnaðarorð um að ef við aukum núna útgjöld og hækkum persónuafslátt eða eitthvað slíkt séum við að auka þensluna. Er ekki tíminn til þess núna? Ég spyr vegna þess að ég er ekki viss. Er ekki tíminn til þess núna að fara út í slíkar aðgerðir til að þær hafi áhrif þegar niðursveiflan hefur tekið við af þeim toppi sem virðist óumdeilt í fljótu bragði að við séum á núna?