148. löggjafarþing — 8. fundur,  22. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[11:20]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Forseti. Sú breyting sem hér er lögð til mun fyrst og fremst gagnast tekjuhærri hópum og efstu tíundum samkvæmt minnisblaði sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd barst frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og því greiði ég atkvæði gegn þessari breytingu.