148. löggjafarþing — 8. fundur,  22. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[11:30]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Forseti. Hér er í raun, eins og hv. þm. Þorsteinn Víglundsson sagði, verið að taka ákvörðun um það að fella út þessa undanþágu en í skrefum. Það er gert til að milda áhrifin á atvinnugreinina og það er verið að koma til móts við þær athugasemdir sem hafa komið fram um að samráð vegna þessarar breytingar hafi ekki verið fullnægjandi. Því segi ég nei.