148. löggjafarþing — 8. fundur,  22. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[11:32]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Þetta varðar stjórn forseta á fundinum. Mig langaði bara að fá þetta staðfest frá forseta varðandi það að hann var byrjaður í nýrri atkvæðagreiðslu eða í atkvæðagreiðslu um nýtt atriði, bakkar samt sem áður. Hingað til hefur mér verið sagt að þetta megi ekki gera. Ef þetta má gera þá er gott að fá staðfestingu á því og þá er bara fordæmið komið, þá vitum við það inn í framtíðina.