148. löggjafarþing — 8. fundur,  22. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[11:44]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég fagna því að hér er verið að hækka frítekjumark aldraðra varðandi atvinnutekjur upp í 100 þús. kr. en finnst stórfurðulegt að þingmenn séu ekki tilbúnir til að samþykkja að öryrkjar fái sitt frítekjumark lögfest í stað þess að vera með til bráðabirgða síðan, hvað, 2007?Í tíu ár hafa öryrkjar staðið frammi fyrir þeirri óvissu sem fylgir því að vita ekki hvort frítekjumark þeirra verður hækkað. Mér finnst það stórfurðulegt. Þetta hefur verið gert í tíu ár. Af hverju getum við ekki lögfest þetta? Þetta var mjög einföld breytingartillaga og hefði ekki kostað neitt nema það að örorkulífeyrisþegar væru öruggir með þessa hækkun. Ég skil þetta hreinlega ekki. Mig langaði að koma því á framfæri.