148. löggjafarþing — 8. fundur,  22. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[11:48]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Þingflokkur Pírata greiðir ekki sameiginlega atkvæði. Ég greiði atkvæði gegn þessu vegna þess að ég er á móti nefskatti. Ég er ekki á móti Ríkisútvarpinu, ég er hins vegar á móti þessu skattformi og vil að Ríkisútvarpið sé fjármagnað með öðrum leiðum og siðsamlegri skattheimtu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)