fjárlög 2018.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir spurningarnar. Ég kom inn á það í upphafi ræðu minnar að sá lagaumbúnaður sem lög um opinber fjármál eru og sem varð að lögum 1. janúar 2016, hefur sannað gildi sitt að einhverju marki þar sem tíðar kosningar hafa einhvern veginn brotið það ferli sem við viljum svo sannarlega að hv. fjárlaganefnd og allt þingið komist í, sem er að ræða ríkisfjármálin í þessu samhengi stefnu áætlunar fjárlagafrumvarps og fjárlög næsta árs. Þangað viljum við komast. Hv. þingmaður getur mun betur metið dýptina í umræðu um fjármálaáætlun en sá er hér stendur þar sem ég var ekki á Alþingi þegar sú umræða fór fram. En þann skilning lagði ég nú í lagaumbúnaðinn frekar en að geta lagt mat á hvernig umræðan var eða hvaða dýpt var í henni.
Já, við ákváðum að forgangsraða fjármunum nefndarinnar. Fyrst við tölum um lög um opinber fjármál erum við með grunngildi og fjármálareglur í 7. gr. og þurfum að hafa það allt í huga. Við þurfum að hafa eftirlit með því hvert fjárveitingar fara. Við ákváðum að forgangsraða hér þar sem mestur hluti þeirra fjármuna sem eru í frumvarpinu fer til Landspítalans og bæta í úti á landsbyggðinni.
Ég vil svo í seinna andsvari koma inn á vinnu nefndarinnar og móttöku gesta frá ráðuneytum.