148. löggjafarþing — 8. fundur,  22. des. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[18:44]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Takk fyrir þetta svar. Við getum örugglega núllstillt þetta kerfi og komið því í gott lag.

En það er annað sem mig langar að tala um og það er Reykjanesbraut. Það urðu tvö slys þar í morgun, þrír slasaðir á sjúkrahús. Þetta er eini einbreiði vegurinn á Stór-Reykjavíkursvæðinu og það á ekki að setja neitt í þetta. Það kostar 2 milljarða. Ég spyr: Hvað þarf að ske þarna til þess að það verði farið í tvöföldun og klárað? Hvað þurfa margir að slasast? Er verið að bíða eftir banaslysum? Hvað er það sem þarf að ske til að við klárum málið? Þetta eru smápeningar í samhengi við hvað það getur kostað fólk gríðarlega í líkamstjóni og öðru, fyrir utan það að um þennan veg fara allir farþegar sem koma frá Keflavík. Við hljótum að spyrja okkur: Af hverju erum við búin með þetta? Þetta er smákafli. Af hverju klárum við þetta ekki?