148. löggjafarþing — 11. fundur,  28. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[16:05]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður veit að ég er sammála henni enda skrifa ég sjálfur undir nefndarálitið ásamt fleirum. En hv. þingmaður minntist á vinnubrögð, ný vinnubrögð, nýja pólitík og allt það. Það hefur sjálfsagt verið talað um slíkt frá upphafi pólitíkurinnar, finnst mér líklegt. Eða alla vega svo lengi sem ég man eftir mér.

Ég gerði mér að leik að reikna; ef við gerum ráð fyrir þeim sem skrifa undir nefndarálitið eru það Viðreisn, Flokkur fólksins, Píratar, Samfylkingin og Miðflokkurinn. Það eru 28 manns. Það er ekki meiri hluti. Hins vegar er 28 plús þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 39 manns. Ég hefði haldið í venjulegu árferði að það væri þó nokkuð mikill meiri hluti fyrir þessum breytingum á barnabótum.

Ég tel mig þó vita, þar sem ég er rétt svo eldri en tvævetra á Alþingi, að þessi tillaga verði sennilega felld ef fram fer sem horfir, þ.e. ef ekkert nýtt gerist allt í einu. Ef ekki koma allt í einu einhver ný vinnubrögð frá stjórninni.

Ég velti fyrir mér og hef hugsað mjög mikið um það eftir atkvæðagreiðsluna um bandorminn og 2. umr. fjárlaga: Hvers vegna er þetta svona? Hvernig stendur á því? Það hlýtur að vera meiri hluti fyrir þessum breytingum miðað við flokkana sem skrifa undir álitið og flokkana sem eru í stjórn. Framsókn væri með í þessu líka, myndi ég giska á, án þess að ég vilji gera þeim upp skoðanir.

Hv. þingmaður hefur talsvert meiri reynslu en ég í þessum efnum, sér í lagi sem ráðherra á sínum tíma. Hvernig getum við unnið tillögur sem sátt er um, sem hlýtur að vera meiri hluti fyrir á Alþingi, samhliða því að vera með meirihlutaríkisstjórn þar sem tillögur minni hlutans eru sjálfkrafa dæmdar úr leik?