148. löggjafarþing — 11. fundur,  28. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[16:10]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég furða mig á þessu því að ég veit að í ríkisstjórninni núna er gott fólk sem vill vel og er í pólitík af heilindum. Ég veit það fyrir víst. Ég get ekki endalaust reynt að sannfæra alla aðra um það en ég veit það fyrir víst. Þess vegna finnst mér þetta svo áhugavert. Eins og hv. þingmaður nefndi er ekkert sjálfgefið að minni hlutinn sé sjálfkrafa á móti tillögum meiri hlutans þegar við greiðum atkvæði um breytingartillögur. Það klikkar hins vegar bara ekki að meiri hlutinn greiðir atkvæði á móti tillögum minni hlutans.

Ég veit ekki alveg hversu mikið af svörum ég get kreist fram hér í þingsal, en mér dettur í hug að það sé vegna þess, og þetta er bara tilgáta, að ríkisstjórnin myndi sér einhverja sýn. Í sýninni er niðurstaða, segjum afgangur af ríkissjóði eða eitthvað því um líkt, sem meiri hlutinn lítur til og vill halda þeirri sýn. Allt sem breytir þeirri sýn er varhugavert. Það er það eina sem mér dettur í hug ef ég reyni að vera eins skilningsríkur gagnvart þessari furðulegu hegðun og ég mögulega get.

En þá segir það mér líka að vinnubrögðum okkar er einhvers staðar ábótavant. Ef við erum með gott fólk við völd sem vill vel, ef við erum með meiri hluta fyrir barnabótatillögunni í það minnsta, og vaxtabótatillögunni líka, sem ég tel að hljóti að vera, þá er bersýnilega eitthvað að því hvernig við vinnum fjárlög, hvernig við vinnum þessar tillögur. Ég er bara að tala um þingsköp og starfshættina hér. Ég held ekki að góð eða ný vinnubrögð eða meira samráð við stjórnarandstöðu felist í einhverjum jákvæðum hug ráðamanna til einstaklinga í stjórnarandstöðu. Það dugar ekki. Það er ekki hugurinn sem gildir í pólitík, það eru verkin sem gilda.

Ég veit ekki alveg hvaða svör ég tel mig geta kreist fram hér í þingsal og ætlast ekki endilega til þess að hv. þingmaður svari því, en (Forseti hringir.) þetta vekur furðu mína.