148. löggjafarþing — 11. fundur,  28. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[16:40]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel að hv. þingmaður komi beint að kjarna málsins þegar hann fjallar um þessa tilhögun að skattleggja sem tekjur væru það sem í eðli sínu er bara greiðsla, stuðningsgreiðsla, af samfélagsins hálfu vegna kostnaðar sem fellur á einstakling sem býr við skerta starfsorku, skerta vinnugetu.

Sömuleiðis leyfi ég mér að segja að þingmaðurinn kemur náttúrlega að kjarna málsins þegar hann fjallar um hin keðjuverkandi áhrif sem þessi háttur hefur í för með sér. Með því að reikna þessar greiðslur sem tekjur þá byrja allar aflvélar kerfisins að kroppa af einstaklingnum í gegnum frádrætti, í gegnum skerðingar og í gegnum þennan þaulhugsaða mekanisma allan saman sem svo brýnt er, virðulegi forseti, að verði rifinn upp með rótum og það sem allra fyrst.