148. löggjafarþing — 11. fundur,  28. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[16:42]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nefnilega einmitt kjarninn í þessu, þessir styrkir. Ég vil taka dæmi um bensínstyrkinn. Ég var með svona bensínstyrk. Þetta eru 15 þús. kr. á mánuði, 5 þús. kr. í skatta, 10 þús. kr. eftir. Síðan skerða þessar 10 þús. kr. allar bætur ef ég fæ þær einhvers staðar annars staðar frá. Þetta er það sem er vandamálið vegna þess að við erum að mæta kostnaði sem hlýst af sjúkdómum og fötlun. Á sama tíma erum við t.d. með íþróttastyrki frá verkalýðsfélögum, skattlausa, sem er flott, bara frábært. En hvernig getur maður sagt við einhvern sem fær lyfjastyrk til að halda lífi: Nei, við ætlum að skatta hann og nota hann síðan til þess að skerða einhverjar aðrar bætur, jafnvel barnabætur vegna barnanna þinna.

Við vorum að tala um fátækt áðan. Ég held að þetta sé eitt af kjarnanum í því þegar verið er að setja fólk í fátæktargildrur. Það er löngu orðið tímabært að taka öll þessi lög og endurskoða þau alveg frá grunni. Eins og ég segi, það þyrfti eiginlega að núllstilla kerfið og byrja algjörlega upp á nýtt ef við viljum hafa mannréttindi og fara eftir stjórnarskrá, vegna þess að í stjórnarskránni stendur skýrum stöfum að það eigi að sjá fólki fyrir framfærslu sem er á örorku og sérstaklega að sjá til þess að börn líði ekki skort. Ef við ætlum að halda svona hlutum inni, keðjuverkandi skerðingum á lífsnauðsynlegum hlutum og skatta og skerða alveg í spað, þá erum við á rangri leið. Ég vona heitt og innilega að við samþykkjum þetta og tökum þetta í burtu.