148. löggjafarþing — 11. fundur,  28. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[17:05]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta voru athyglisverðar hugmyndir. Það má kannski bæta í púkkið hugmyndum um hvort heppilegt væri að við værum með ákvæði í stjórnarskrá okkar eða í lögum sem gengu í svipaða átt og til dæmis tíðkast í Noregi þar sem kjörtímabilið er fast, þ.e. þingmenn verða bara að gera svo vel og sitja kjörtímabilið. Og ef upp kemur ágreiningur, ríkisstjórnir springa, verður þingið að taka málin í sínar hendur og mynda nýja ríkisstjórn, hvort sem það er þá meirihlutastjórn eða minnihlutastjórn. Það er eitt.

Síðan er annað, sem mér finnst mjög athyglisvert að velta fyrir mér, það eru heimildir þingmanna, tiltekins hluta, minni hluta þá í þessu tilviki, til þess að skjóta einstökum málum í þjóðaratkvæði, líkt og Danir hafa. Það vofi yfir ef minni hlutanum finnst gengið mjög freklega á rétt sinn eða málefni sín að hann hafi það í vopnabúri sínu. Eftir því sem ég best veit heyrir það, þrátt fyrir að slík ákvæði séu í Danmörku, til algerra undantekninga að málum sé skotið til þjóðarinnar með þessum hætti þótt minni hlutinn hafi þetta vald því að það virkar þá þannig að menn reyna að semja og ná samkomulagi um þau mál til að forðast, sem má svo spyrja hvort sé endilega rétt að forðast, að skjóta máli til þjóðarinnar. En látum það liggja á milli hluta í þessari umræðu. En það þýðir að menn verða samvinnufúsari, sáttfúsari í störfum þingsins.