148. löggjafarþing — 12. fundur,  29. des. 2017.

fjáraukalög 2017.

66. mál
[15:50]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að vera sammála því að fjáraukalagafrumvarpið sé utan sviga í þessu eða innan sviga, eins og hv. þingmaður gerir ráð fyrir. Það er einfaldlega hlutverk ríkisstjórnarinnar og fjármálaráðuneytisins að skila til okkar frumvarpi sem fer eftir lögunum. Ríkisstjórnin er augljóslega ekki að gera það þó að hv. þingmaður vilji ekki taka sterkar til orða en svo að eitthvað sé á gráu svæði. Ef við tökum efnislegu umræðuna er ég viss um að við komumst mjög skýrt að því að þarna eru nokkur atriði sem eru alls ekkert á gráu svæði, heldur bara á kolsvörtu svæði.

Það er ekkert flókið að koma í veg fyrir að við gerum þetta rangt. Gert er ráð fyrir því í lögum um opinber fjármál að þá detti sá málaflokkur í halla fyrir næsta ár o.s.frv. og varasjóðurinn sem fylgir því fer bara með. Þannig eigum við að vera í meiri samfellu með fjárlögin í staðinn fyrir að reyna alltaf að loka fjárlögum með fjáraukalagafrumvarpi á hverju ári o.s.frv.

Innleiðingarferlið er víðtækt. Það á alla vega að reyna. Við vorum í umræðum hér áðan, ég og hv. formaður fjárlaganefndar, um það hvar við værum í ferlinu, af hverju við værum á þessum stað þó að við vildum það ekki. Við erum búin að fara í gegnum ferlið eins og á að gera. Við erum búin að setja upp fjármálastefnu og fjármálaáætlun og fjárlög sem byggja á fjármálaáætluninni, eiga að gera það. Þannig að við erum búin að fara í gegnum þetta ferli eins og á að gera bara með (Forseti hringir.) aukakosningum inn á milli. En ferlið er komið. Við erum búin að renna í gegnum það einu sinni. (Forseti hringir.) Við erum að ljúka því núna í fyrsta skipti með fjáraukalögum á röngum forsendum.