148. löggjafarþing — 12. fundur,  29. des. 2017.

fjáraukalög 2017.

66. mál
[16:19]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrir ræðu hans og innlegg í 2. umr. fjáraukalagafrumvarps og get tekið undir margt af því sem hann kom inn á og rakti. Ég vil byrja á að segja að ég meðtek vel áskorun hv. þingmanns um að breyta hér verklagi og auka agann í kringum það vinnulag og ramma sem lög um opinber fjármál setja okkur og herða á eftirliti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni þegar kemur að því og hlakka beinlínis til að komast inn í það ferli sem birtist í lögunum, að komast loks til að vinna eftir fjármálastefnu, ríkisfjármálaáætlun í kjölfarið og svo fjárlögum.

Eins og hv. þingmaður kom inn á vinnum við í fjárauka eftir 26. gr. laga um opinber fjármál. Það eru sambærileg tilvik fjárheimilda til að geta brugðist við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum og gildir um almenna varasjóðinn í 24. gr., sem þó er kannski með öllu strangari skilyrðum. Ég ætla í fyrra andsvari að vísa í ræðu hv. þm. Haraldar Benediktssonar, varaformanns fjárlaganefndar, sem mælti fyrir nefndaráliti meiri hlutans. Hv. þingmaður fór afar vel yfir þær pólitísku aðstæður sem eru vinnugrundvöllur þessa frumvarps. Ég held, án þess að ég setji fram neina sérstaka spurningu í fyrra andsvari, að skýrt hafi komið fram í áliti meiri hlutans að þetta væri ekki fordæmisgefandi.