fjáraukalög 2017.
Frú forseti. Eins og ég gat um í ræðu minni erum við alveg sammála, held ég, hv. formaður fjárlaganefndar og við í minni hlutanum. Þá skulum við bara standa við það og fara sameiginlega í þessa vegferð. Ég get reyndar ekki verið sammála hv. formanni að ég hlakki til að breyta ferlinu, en ég er samt mjög ánægður að við séum einhuga um að vilja breyta því. Það verður erfitt. Ráðuneytin eru rótgróin og embættismannakerfið er öflugt. Þess vegna skiptir máli að við hérna, 63 þingmenn með löggjafarvald, fjárveitingavald, einhendum okkur í vinnuna og gerum það saman. Þetta er ekki flokkspólitískt mál. Þetta eru betri vinnubrögð. Þess vegna fagna ég sérstaklega því sem hv. formaður fjárlaganefndar sagði áðan.