fjáraukalög 2017.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er rétt, til að gæta fyllstu sanngirni, að það eru alveg sömu áhyggjurnar, heyrir maður, í meiri hluta og minni hluta fjárlaganefndar hvað þetta varðar og þverpólitískur vilji til að skerpa á framkvæmd svo að fjárauki sem þessi endurtaki sig ekki. Það er alveg rétt sem kom fram hjá hv. þingmanni. Ég saknaði þess hins vegar og hefði viljað sjá fjárlaganefndina einfaldlega gera breytingar, færa þá út varasjóðina á móti skilgreindum fjárheimildarbeiðnum sem felast í fjáraukanum og lækka hann sem því næmi. Ég hefði talið það eðlilega ráðstöfun. Það væri í raun til að tryggja meira aðhald í framhaldinu því að ekki má gleyma því að ónýttir varasjóðir málaflokka í það minnsta færast á milli ára, eins og ég skil það. Það eykur þá svigrúm framkvæmdarvaldsins á næsta ári sé þetta ekki gert.