fjáraukalög 2017.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið og þau orð sem þar féllu. Þetta er sannarlega ákveðið áhyggjuefni. Í þessu ferli sem bar allt saman ákaflega brátt að og einkenndist af miklum tímaskorti gerist á allra síðustu stigum málsins að fram koma nýjar upplýsingar í málinu í áliti meiri hlutans, þ.e. um það að LSR hafi farið yfir þetta og sé metið þannig að þetta henti vel.
En eins og ég sagði í ræðu minni, svo ég ítreki það, án þess að draga í nokkurn efa sannleiksgildi þeirra fullyrðinga sem þar koma fram hefði verið gagnlegt að þessu hefðu fylgt gögn frá lífeyrissjóðnum um hvers eðlis þessi greining hafi verið, hvaða sérfræðiþekkingu lífeyrissjóðurinn telji nauðsynlega til að geta með árangursríkum hætti fengist við þessar eignir, hvaða sjónarmið séu uppi af hálfu lífeyrissjóðsins varðandi það hvernig unnið verði að málinu, hvort hann sjái fyrir sér umtalsverðan kostnað eins og ég gat um í ræðu minni, m.a. við öflun sérfræðiálita, hugsanleg málaferli, almenna sérfræðiráðgjöf og annað af því taginu.
Ég held því að ekkert sé ofsagt þótt maður leyfi sér að lýsa þungum áhyggjum vegna þessa málatilbúnaðar.