148. löggjafarþing — 12. fundur,  29. des. 2017.

fjáraukalög 2017.

66. mál
[17:42]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir afar góða ræðu. Mér fannst hún vera afmörkuð og markviss og þess vegna góð að efni til. Hv. þingmaður kom fyrst í ræðu sinni almennt inn á lög um opinber fjármál og notkun varasjóða og hvað eigi heima í fjárauka og hvað ekki. Það tengist þeirri góðu umræðu sem verið hefur um málið í dag. Ég tek undir með hv. þingmanni og lýsi því yfir um leið að það er samhugur og vilji í nefndinni til að bæta allt verklag innan þess ramma sem lög um opinber fjármál setja okkur.

Hv. þingmaður ræddi um þær eignir sem færðar eru úr Lindarhvoli, félagi sem stofnað var til að fara með eignir úr stöðugleikaframlögum í sérstökum lögum á sínum tíma. Þar var sett inn sólarlagsákvæði og tekið fram að því bæri að hámarka virði eigna, eðlilega. Hér er sá farvegur fundinn að færa þessar eignir yfir í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Það er ágætlega frá því greint í áliti meiri hlutans. Hv. þingmaður kom með viðbótarspurningar, því að nefndin fékk á sinn fund fulltrúa fjármálaráðuneytis og minnisblað sérstaklega um þetta efni og gerir grein fyrir því í meirihlutaáliti. Spurningar hv. þingmanns eru afar góðar og verða ræddar áfram á vettvangi nefndarinnar. Annars er ég ekki með neinar spurningar og vil þakka hv. þingmanni framlag hans og innlegg og samstarf í nefndinni.