fjáraukalög 2017.
Virðulegi forseti. Ég er ekki endilega með allar lausnir á þessu en finnst í sjálfu sér áhugavert hvað það er mikið í lögum sem er síðan ekki framfylgt. Það er t.d. lagaklausa sem ég reyndi að fletta upp á þessum örskamma tíma en mistókst það, því miður, sem fjallar um að nefndir eigi að kostnaðargreina hluti, sem þær gera ekki. Þá er það orðað þannig að sú grein hafi aldrei verið virkjuð. Áhugavert hugtak lagalega eins og fleira sem má finna í þingsköpum og víðar.
Nú vildi ég að við værum að ræða frumvarp stjórnlagaráðs því það er svo margt þar sem er þess virði að ræða. Í frumvarpinu eins og það var lagt fram af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er það 69. gr. sem fjallar um greiðsluheimildir. Þar kemur fram, með leyfi forseta, í fyrstu málsgrein:
„Enga greiðslu má inna af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum.“
Síðan kemur í annarri málsgrein:
„Að fengnu samþykki fjárlaganefndar Alþingis getur fjármálaráðherra þó innt greiðslu af hendi án slíkrar heimildar, til að mæta greiðsluskyldu ríkisins vegna ófyrirséðra atvika eða ef almannahagsmunir krefjast þess. Leita skal heimildar fyrir slíkum greiðslum í fjáraukalögum.“
Þarna er grein sem í fljótu bragði virðist ekki mjög frábrugðin þeirri sem er í gildi. Í gildandi stjórnarskrá segir einfaldlega að engar greiðslur megi inna af hendi nema heimild til þess komi fram í fjárlögum eða fjáraukalögum.
Við meðferð þingsins þegar þetta mál var rætt á 141. þingi bætti stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd við fjárlögum eða aukafjárlögum. Ég er því ekki viss um að þetta hefði mikið að segja en dettur samt í hug að það gæti skipt máli ef heimildin væri algerlega bundin í stjórnarskrá, ekki lögum um opinber fjármál eða þingsköp eða slík lög heldur stjórnarskrá lýðveldisins, það væri beinlínis óheimilt að greiða þessa peninga nema vegna ófyrirséðra atvika eða ef almannahagsmunir krefðust þess. Ég myndi halda að það væri talsvert erfiðara fyrir ríkisstjórn að brjóta gagnvart stjórnarskrá en það er fyrir hana að sleppa því að virkja einstaka ákvæði í lögum um opinber fjármál.