148. löggjafarþing — 14. fundur,  22. jan. 2018.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan.

[17:24]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Í þessari umræðu ætla ég að fara aðallega yfir samgöngumálin, byggðamálin og hin stóru sjónarmið ríkisstjórnarinnar sem hún vinnur að. Verkefni ríkisstjórnarinnar er að skapa sterkt samfélag og auka samkeppnishæfni landsins þannig að Ísland verði land tækifæranna fyrir alla landsmenn. Við viljum jú að unga fólkið okkar velji Ísland til búsetu vegna þess að hér sé gott að búa og starfa. Þess vegna þurfa innviðir samfélagsins að vera sterkir alls staðar á landinu. Gott samfélag þarf að vera til fyrir alla en styrkja þarf sérstaklega stöðu þeirra sem höllum fæti standa og hefur ríkisstjórnin þess vegna áform uppi um slíkt.

Heilbrigðismálin, menntunarmöguleikar fólks og samgöngur eru lífæðar hverrar byggðar sem þarf að efla og bæta. Það er okkar stjórnmálamannanna að skapa skilyrðin, tryggja tækifærin og jafna aðgengi fólks að þjónustu óháð aldri og búsetu. Við blasa brýn verkefni í uppbyggingu innviða um allt land. Við sýndum á spilin í fjárlögunum 2018 þar sem þingið í annað sinn þurfti að afgreiða fjárlög á óvanalega stuttum tíma. Í fimm ára fjármálaáætlun sem undirbúningur er hafinn að og kemur fram í marslok, fyrir 1. apríl, þurfum við að sýna fram á hvernig við ætlum að nota þetta kjörtímabil til að standa við þau orð sem við höfum haft uppi.

Samgöngur eru undirstaða þess að samfélag geti þrifist á eðlilegan hátt, bæði samgöngur til útlanda og hér innan lands, og hvað varðar atvinnu, menningu, öryggi og þróun samfélagsins. Góðar og greiðar samgöngur skapa störf og eru mikilvægar til að búa til hagvöxt, eru undirstaða hagvaxtar og velmegunar þjóðfélaga. Ríkisstjórnin ætlar á næstu árum að bæta enn við þau fjárframlög til vegaframkvæmda og veitir ekki af og taka á uppsöfnuðum vanda hringinn í kringum landið. Á undanförnum árum hefur umferð bifreiða margfaldast með auknum fjölda ferðamanna og velmegun í samfélaginu. Á sama tíma hefur okkur ekki tekist að viðhalda vegakerfinu sem skyldi en skortur á fjármagni til þess hefur leitt til þess að víða er pottur brotinn. Staðan er því miður bágborin.

Samgöngukerfið er forsenda samkeppnishæfninnar, þjónustunnar, atvinnulífsins og búsetugæða. Þess vegna þarf þróunin að taka mið af þörfum fólks hvar sem það býr, atvinnulífsins, búsetunnar, þjónustunnar og öryggishlutverki þess sem það gegnir. Allt bendir til þess að umferð um vegi landsins haldi áfram að aukast verulega á næstu misserum og árum. Því miður fylgja aukningunni ýmis óæskileg áhrif. Alvarleg slys, banaslys, hræðileg slys, eru alltaf óásættanleg.

Fyrir nokkrum árum var gert átak í öryggismálum sjófarenda til að treysta öryggi íslenskra skipa, áhafna og farþega þeirra. Við sögðum einfaldlega að við sættum okkur ekki við það sem við höfum lifað af í gegnum árhundruð, áratugina. Með bættum búnaði, fræðslu, hertari reglum og öflugum björgunarsveitum tókst að fækka sjóslysum, jafnvel svo að á síðustu árum hafa komið þó nokkur ár þar sem enginn hefur farist á sjó. Í kjölfar alvarlegs flugslyss fyrir nokkrum árum gerðum við það sama í fluginu; hertum reglur og fórum yfir verklagsreglur. Og með nokkuð góðum árangri. Á sama hátt getum við fækkað umferðarslysum, sem eru því miður allt of algeng staðreynd, þrátt fyrir aukninguna í umferðinni. Á síðustu árum hefur verið stöðugt unnið í því að fækka þeim. Margt hefur áunnist. En betur má ef duga skal. Það er alltaf hægt að gera betur, þó að við komum auðvitað aldrei í veg fyrir öll slys.

Aukin umferð krefst þess að umferðaröryggi sé tekið föstum tökum þar sem allir taki sameiginlega ábyrgð á að fækka þeim. Heilsa og öryggi þarf að vera forgangsatriði í samfélagi okkar. Við eigum rétt á að aka um vegina og ganga um göturnar án þess að slasast alvarlega eða láta lífið. Börnin okkar eiga réttmæta kröfu á að búa í öruggu umhverfi. Við eigum ekki að sætta okkur við að banaslys sé eðlilegur hluti af samgöngukerfinu. Fyrir utan mannlegan harmleik sem umferðarslys valda hleypur kostnaður þeirra á tugum milljarða. Vaxandi umferð krefst þess einnig að sjónum sé beint að notendum vegakerfisins og ekki síst þeim fjölmörgu ferðamönnum sem ferðast um landið. Þar eru notendur sem koma úr allt annarri umferðarmenningu en við eigum að venjast og þekkja kannski ekki akstursskilyrði nægilega sem oft eru á íslenskum vetri.

Í nýrri samgönguáætlun verður forgangsraðað í þágu öryggis og viðhalds þar sem metnaðarfull og skilvirk markmið verða sett um öryggi samgangna og gerðar skilvirkar öryggisáætlanir fyrir samgöngur á landi, á sjó og í lofti. Það verður hins vegar alltaf svo að við getum seint komið í veg fyrir mistök. En framtíðarmarkmiðið hlýtur að vera að lágmarka og draga úr alvarleika umferðarslysa.

Hæstv. forseti. Það er mikilvægt fyrir okkar strjálbýla land að undirstöðuatvinnugreinar okkar, landbúnaður, sjávarútvegur og ferðaþjónusta sem eru undirstöðuatvinnugreinarnar á landsvísu, eða aðrar, hinar skapandi greinar, nýsköpun, sem við þurfum einnig að efla hringinn í kringum landið, gefi af sér verðmæti alls staðar á landinu. Við byggjum það upp alls staðar. Einstaka svæði eiga því miður í vök að verjast. Þess vegna þarf að leita nýrra leiða til að snúa við vítahring íbúafækkunar og einhæfs atvinnulífs hjá fámennum byggðarlögum. Liður í því er að virkja námslánakerfið til að efla búsetu á þeim svæðum sem lið í uppbyggingu og horfa til byggðaaðgerða sem tíðkast í nágrannalöndum okkar þar sem menn nota m.a. námslánakerfið eða afborganir af þeim og hlé á afborgunum til að ýta undir búsetu fólks með menntun sem vantar inn á þau svæði, en einnig þarf að nýta svæðisbundna þekkingu sem best.

Öflugt menntakerfi um land allt er því lykilatriði þess að hér verði áframhaldandi velsæld þjóðar. Þar skiptir sköpum að öflug fjarskiptatækni og tryggur gagnaflutningur sé til staðar sem gerir fólki kleift að vinna hvar sem er, skapa verðmæti, sinna vinnu eða námi þar sem það vill búa. Þess vegna er jú gleðilegt að við erum með verkefnið Ísland ljóstengt hringinn í kringum landið, sem mun verða lokið við á þessu kjörtímabili, þar sem við verðum ljósleiðaratengd, öll heimili og fyrirtæki í landinu. Eða allflest, 99,9%.

Tenging byggðakjarna sem mynda sterk vinnusóknarsvæði með skilvirkum samgöngum þar sem landsmenn hafa jafnan aðgang að ásættanlegri heilbrigðisþjónustu, möguleikum til að afla sér menntunar, atvinnutækifærum og lífskjörum er forsenda þess að byggð haldist um landið allt. Þar er innanlandsflugið mikilvægur þáttur og á að vera hluti af almenningssamgöngum. Við ætlum að leita leiða til að gera innanlandsflugið að hagkvæmari kosti fyrir íbúa landsbyggðarinnar og stytta þannig ferðatíma fólks á milli svæða. Í því samhengi verður skoðað með hvaða hætti svokölluð skosk leið geti orðið hvati til aukinnar notkunar á innanlandsflugi í þeim tilgangi að jafna aðgengi landsmanna að þjónustu.

Þá hefur flugstarfsemi almennt farið vaxandi á undanförnum árum og hlutur hennar í vergri landsframleiðslu kominn á annan tug prósenta í flugtengdri starfsemi. Flugið er nefnilega undirstaða ferðaþjónustunnar, ekki bara til landsins, heldur getur það líka orðið undirstaða uppbyggingar almennings- og ferðaþjónustu víðs vegar um land. Að ferðamennirnir komist, ekki síst yfir vetrarmánuðina. Það er undirstaða ferðaþjónustunnar og mikilvægt fyrir atvinnulíf, landsmenn og atvinnusköpun þess er mjög mikil.

Í tengslum við samgönguáætlun mun því verða skipaður starfshópur á næstunni til að móta tillögur að flugstefnu. Já, fram undan eru mjög stór verkefni og stefnumótun sem snerta daglegt líf almennings. Á næstu vikum mun fjármálaáætlun líta dagsins ljós þar sem áherslan verður á að byggja upp sterka innviði sem skapa sterkt og stöðugt samfélag en um leið að tryggja þau verðmæti sem felast í efnahagslegum stöðugleika. Ég hef heyrt hér og hlustaði á umræðuna í dag að menn hafa talað um að ríkisstjórnin viti ekki hvað hún ætli að fara að vinna við. Það er algerlega skýrt í mínum huga. Við ætlum að byggja upp öflugt, sterkt samfélag á grunni þess sem við þekkjum og halda áfram að þróa það í þá átt sem við viljum stefna, að allir landsmenn búi við möguleika á að sækja sér þjónustu, jafna þjónustu, af hálfu ríkisins, og eigi möguleika á að nýta tækifærin í heimabyggð sinni, hver sem hún er. Til þess þurfa að vera til sterkir innviðir.

Samhliða fjármálaáætluninni er í mínu ráðuneyti unnið að stefnumótun í samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun. Allar þessar áætlanir þurfa að vera raunsæjar og tímasettar áætlanir í takti við fjárheimildir sem Alþingi er tilbúið til að samþykkja. Aukin fjárfesting og framkvæmdir (Forseti hringir.) tryggja samfélagsleg verðmæti, jöfn dreifing verkefna og tímasettar áætlanir fram í tímann með fyrirsjáanleika, draga úr óþarfa sveiflum sem styðja jafnan við óeðlilegan hagvöxt. Það eru verðmæti sem við getum mjög vel tryggt með þverpólitísku samtali á Alþingi.