148. löggjafarþing — 15. fundur,  23. jan. 2018.

kolefnisjöfnun og endurheimt votlendis.

[13:42]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrirspurnina og býð hann um leið velkominn til þings. Ég vil fyrst af öllu segja að þau atriði sem hv. þingmaður gerir að umtalsefni falla að stærstum hluta til að verksviði umhverfisráðherra en það sem snýr að landbúnaðarráðuneytinu í þessum efnum hef ég rætt við umhverfisráðherra. Við munum að sjálfsögðu koma inn í þau verk undir forsjá umhverfisráðherra sem hefur yfirumsjón með þessum málum í sínum höndum.

Það er hins vegar eitt atriði sem snýr að því sem kom til afgreiðslu við fjáraukalögin í desember sem lýtur að stuðningi við sauðfjárræktina í landinu og snýr að verkefnum tengdum kolefnisjöfnun í landinu. Þar höfum við umhverfisráðherra rætt að stilla saman strengi, með hvaða hætti við getum unnið betur í þessum málum en gert hefur verið.

Þetta er mitt svar að svo komnu máli.