148. löggjafarþing — 15. fundur, 23. jan. 2018.
kolefnisjöfnun og endurheimt votlendis.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ástæðan fyrir því að ég beini þessu til hans er sú að það er mjög mikilvægt fyrir landbúnaðinn að vera með í kolefnisumræðunni og miklir hagsmunir þar í húfi að hann sinni sínum skyldum auðvitað eins og aðrir við kolefnisjöfnun og leysi þessi vandamál með öðrum. Ég vildi beina því til ráðherrans að passa upp á þetta. Þetta er mjög mikilvægt atriði og verður vaxandi í umræðunni. Ég tel að landbúnaðarráðuneytið þurfi að koma vel að þessu.