148. löggjafarþing — 15. fundur,  23. jan. 2018.

kolefnisjöfnun og endurheimt votlendis.

[13:44]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Já, eins og ég segi, ég lýsi mig fyllilega reiðubúinn til þess. Það er í fullu samræmi við ríkisstjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að taka á í þeim efnum. Ég bendi hv. þingmanni á þau atriði sem snúa að stjórnarsáttmálanum í þessum efnum þar sem m.a. er ætlunin að gera gangskör að því að vinna betur í þeim efnum. Eitt atriðið sem kemur þar til skoðunar er að stuðla að því í tengslum við endurskoðun búvörusamninga, að grípa til ákveðinna ráðstafana í þessum málum.