rannsókn á skipun dómara við Landsrétt.
Virðulegur forseti. Það er kannski rétt að árétta gagnvart þeim sem ekki hafa fylgst með, að fallinn er hæstaréttardómur um stjórnsýslu ráðherrans í þessu máli. Hvorki ráðherra né aðrir þurfa að sæta tvöfaldri málsmeðferð eða ítrekaðri rannsókn á einhverjum atvikum. Það er verkefni Alþingis að fjalla sérstaklega um hver aðkoma stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eða jafnvel Alþingis í heild geti verið að því að rannsaka tiltekna stjórnsýsluathöfn sem þegar er fallinn dómur um.
Það kann auðvitað að vera að menn gruni það að komist verði að annarri niðurstöðu en Hæstiréttur gerði í sínum dómi. Það kann að vera. En ég beini því til þingsins að huga að þessu réttarfarsatriði.
Nú er málið til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég hef ekki, frekar en aðrir þingmenn, fullan skilning á því hver tilgangur þeirrar meðferðar er. Ég hef hins vegar sagt að ég fagna því að þingnefndir og þingið sjálft taki til umfjöllunar heildstætt málefni er lýtur að skipun í embætti á vegum ríkisins. Ég hef nefnt það og haft frumkvæði við allsherjar- og menntamálanefnd. Ég bíð reyndar eftir boði á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en mun að sjálfsögðu óska eftir að koma fyrir nefndina verði ég ekki boðuð, því að ég heyri að nefndin er að kalla gesti til sín.
Hins vegar las ég ummæli í Morgunblaðinu rétt áðan frá hv. þingmanni, fyrirspyrjanda hér, vangaveltur hans, þar sem kemur glögglega fram hver tilgangur umfjöllunar nefndarinnar er, að minnsta kosti af hans hálfu. Þar kemur sérstaklega fram að tilgangurinn sé ekki að rannsaka eitt eða neitt því að málið sé að fullu upplýst, heldur sá að (Forseti hringir.) koma ráðherranum frá.