rannsókn á skipun dómara við Landsrétt.
Virðulegur forseti. Það kemur fram á mbl.is tilvitnun í hv. þm. Jón Þór Ólafsson sem lýsir kannski umræðunni á þinginu af hans hálfu, og einhverra flokkssystkina hans, í þessu máli. (Gripið fram í.) Hér segir, með leyfi forseta:
„Við getum ekki knúið það fram að hún víki strax. En við getum haldið málinu lifandi með rannsókn sem er það líklegasta í stöðunni til að fá hana til að axla ábyrgð.“
(JÞÓ: Axla ábyrgð. Það er málið.) Málið liggur (Forseti hringir.) alveg skýrt fyrir. Ég hef lýst því frá því að þetta mál kom hingað inn á þing á síðasta kjörtímabili hver afstaða mín var til túlkunar á þessum reglum. Ég fæ ekki séð hvernig hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar að grafast nánar fyrir um huglæga afstöðu mína til málsins á þessum tíma. Ég veit ekki hvaða tæki hún hefur eiginlega til þess. (Gripið fram í.) Ég hef lýst afstöðu minni í því.
Ég velti hins vegar fyrir mér: Af hverju greiddi flokkur hv. þingmanns, fyrirspyrjanda hér, ekki atkvæði með tillögum hæfisnefndarinnar? Þeir sátu ekki einu sinni hjá eins og þeir gera alltaf heldur greiddu atkvæði (Forseti hringir.) gegn tillögum hæfisnefndarinnar um þá ellefu einstaklinga (Forseti hringir.) sem bæði hæfisnefndin (Gripið fram í.) og ég vorum alveg sammála um að ætti að leggja fyrir Alþingi, en hv. þingmaður kaus að greiða atkvæði gegn því. (Gripið fram í.)(Forseti hringir.) Hvað hefur hann á móti þeim einstaklingum (Forseti hringir.) sem hæfisnefndin lagði til? (Gripið fram í.)(Forseti hringir.) Hvað hefur hann á móti … (Forseti hringir.)
(Forseti (SJS): Ræðutímanum er lokið.)
— þeim sem hæfisnefndin lagði til? (Gripið fram í.)