148. löggjafarþing — 15. fundur,  23. jan. 2018.

um fundarstjórn.

[14:13]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég sé að hæstv. dómsmálaráðherra hefur tekist að dreifa athyglinni yfir á það sem varðar ekki hennar ábyrgð, enda var það væntanlega markmiðið með þeim útúrsnúningum sem hún fór í áðan. Ég sat ekki á þingi þegar atkvæðagreiðslan fór fram og ætla ekki að svara fyrir það, ég leyfi öðrum að gera það.

Hins vegar verð ég að bregðast við orðum hv. þm. Birgis Ármannssonar sem mun taka aftur til máls um fundarstjórn. Hann spyr hvort hér sé um að ræða pólitískan hráskinnaleik þegar stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, nefnd sem ætlað er það hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu, sinnir rannsóknarskyldu sinni til þess að allur þingheimur geti tekið upplýsta ákvörðun um hvort þetta þing treysti þessum ráðherra — að krefjast pólitískrar ábyrgðar. Ég ætla að lesa orð hv. þm. Jóns Þórs Ólafssonar sem hæstv. ráðherra vitnaði í. Þar segir, með leyfi forseta:

„Við getum ekki knúið það fram að hún víki strax. En við getum haldið málinu lifandi með rannsókn sem er það líklegasta í stöðunni til að fá hana til að axla ábyrgð.“

Það snýst um rannsókn (Forseti hringir.) til að ráðherrann axli ábyrgð. Ef það er pólitískur hráskinnaleikur í huga hv. þm. Birgis Ármannssonar velti ég fyrir mér hvernig í ósköpunum hann vill hafa það. Pólitísk ábyrgð er ekki pólitískur hráskinnaleikur.