fjármálastefna 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ég get í sjálfu sér ekki sagt mikið meira um sveitarstjórnarstigið, hvort hætta sé á að menn nái ekki að halda við þau markmið sem við höfum sammælst um. En þetta á sér allt ákveðið samráðsferli, það markmið sem er tölusett fyrir sveitarstjórnarstigið og gangi það ekki eftir verður svo sem erfitt að finna sveitarfélagið sem ber ábyrgð á því. En auðvitað skipta stærstu sveitarfélögin mestu varðandi heildarniðurstöðu fyrir afkomu sveitarfélaganna í heild. Og eins með skuldaþróunina. Það eru einungis örfá sveitarfélög í dag sem ekki ná 150% viðmiðinu varðandi skuldahlutföll. Þetta hefur allt verið að þróast á réttan veg.
Síðan er það varðandi innviðafjárfestingar. Við höfum almennt hér í þinginu vísað til fjárfestinga í samgöngumannvirkjum, áþreifanlegra fjárfestinga, sem innviðafjárfestingar og svo höfum við líka talað um hina félagslegu innviði. Ég vil meina að með nýju fjárlagafrumvarpi sé innviðafjárfestingin í þessum skilningi nú þegar hafin með talsvert mikilli áherslu á heilbrigðismál og félagsmál, menntamál. Við munum síðan halda áfram slíkri uppbyggingu, m.a. á sviði samgangna, á grundvelli langtímaáætlana í þeim efnum. En um nauðsynlegan aðdraganda slíkra ákvarðana vil ég taka heils hugar undir með fjármálaráðinu að það þarf að tryggja að horft sé til þjóðhagslegrar hagkvæmni þegar slíkar ákvarðanir eru teknar.
Ef eitthvað er þá held ég að það sé kannski helst þingið sem í gegnum tíðina hefur brugðist í því að forgangsraða með þeim hætti og hafi frekar tekið fram yfir einstaka pólitískar áherslur eins og þær hafa legið hverju sinni