148. löggjafarþing — 15. fundur,  23. jan. 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[15:22]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég er að gagnrýna hagstjórn Sjálfstæðismanna nokkur ár aftur í tímann. Ég held að verðbólgan hafi m.a. annars verið lág þrátt fyrir hagstjórnina. Ég held að hæstv. fjármálaráðherra sé að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Af hverju hefur verðbólga verið lág á Íslandi? Hæstv. fjármálaráðherra veit það mætavel. Hér hefur verið mjög lág innflutt verðbólga. Það er nánast engin verðbólga í Evrópu. Er hæstv. fjármálaráðherra að þakka sér það líka? Það hefur gríðarlega mikil áhrif á okkur sem byggjum mikið á innflutningi. Við þurfum að byggja hagkerfi okkar mikið á innflutningi.

Hæstv. fjármálaráðherra veit líka mætavel að ytri skilyrði voru mjög jákvæð. Við vorum með mjög jákvæð viðskiptakjör þegar kemur að sjávarútvegsafurðum okkar. Hingað kom inn eitt stykki makrílstofn. Makríll er orðinn næstverðmætasti fiskstofn í lögsögunni. Þetta er enginn jaðarfiskstofn sem kom hingað á mjög heppilegum tíma. Og svo að sjálfsögðu ferðamennirnir. 500 þúsund ferðamenn árið 2008 eða hvað það var, 2,5 milljónir núna.

Þannig að, jú, aðstæðurnar hafa unnið með okkur en aðstæðurnar í hagkerfinu hafa verið jákvæðar vegna þessara þátta en ekki vegna hagstjórnar Sjálfstæðismanna. Þvert á móti. Mér finnst þeir einmitt vera að fá falleinkunn eftir falleinkunn frá m.a. fjármálaráði og öðrum aðilum sem hafa varað við: Gerið ekki sömu mistök og í aðdraganda hrunsins. Rannsóknarnefnd Alþingis nefndi það sérstaklega að skattalækkanirnar í aðdraganda hrunsins voru rangar, voru þensluhvetjandi. Kárahnjúkar voru á röngum tíma. Seðlabankinn var ekki nógu aðhaldssamur, þ.e. hann hækkaði ekki vexti nógu mikið. Þetta voru allt atriði sem rannsóknarnefnd Alþingis benti á. Þess vegna óttast ég að við séum hugsanlega að endurtaka leikinn. Auðvitað átta ég mig á að við erum ekki að fara að upplifa annað eins hrun og síðast en það eru blikur á lofti. Það sem fer upp kemur aftur niður. Við munum upplifa fyrr en varir niðursveiflu í hagkerfi okkar. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við hellum ekki olíu á eld, eins og t.d. með vanhugsuðum skattalækkunum þvert á ráðleggingar sérfræðinga, á tímum framleiðsluspennu og þenslu.