fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Það er væntanlega vandasamt að stjórna ríkisfjármálum, hvort sem það er þensla eða samdráttur. Þess vegna geri ég mikið úr því að við hlustum á sérfræðinga sem beina þeim orðum til okkar að nota úrræðin á réttum tíma, eins og með skattalækkanirnar. Við erum á þenslutímum. Sérfræðingar segja: Þá lækkið þið ekki skatta. Það er eins og að hella olíu á eld. Þegar kemur samdráttur skulum við lækka skatta. Þá þarf að örva. Ég aðhyllist hagfræði eins og Keynes talaði fyrir, að nota ríkisfjármálin til sveiflujöfnunar. Við eigum að gera það. Það er skást og best fyrir almenning. Við sláum allt of oft slöku við í ríkisfjármálunum, allir flokkar, freistnivandinn er mikill í starfsgrein okkar. Í aðdraganda kosninga lofum við öllu fögru o.s.frv. og verkefnin eru æðimörg, en við þurfum að standa í lappirnar og vera raunsæ því að annars er það hinn anginn á hagkerfinu eða hinni opinberu hagstjórn sem lendir í því að taka til eftir okkur. Þetta eru annars vegar ríkisfjármálin, sem eru þá fjárlög ríkisins og sveitarfélögin, og svo er það Seðlabankinn. Ef við sláum slöku við eða hellum olíu á eld í þensluumhverfi, eins og skattalækkanir í dag væru, þarf hinn angi ríkisfjármálanna að taka til starfa, þ.e. Seðlabankinn. Hann hefur í rauninni aðeins það úrræði að hækka vexti. Vextir eru í raun ekkert annað en verð á peningum. Bankinn hækkar vexti í þensluumhverfi til að gera peninga dýrari. Þetta er það úrræði og það líkan sem hann starfar eftir. Menn geta alveg gagnrýnt Seðlabankann en þetta er engu að síður það sem flestir seðlabankar nota. Við þurfum að vanda okkur, sérstaklega í ástandi eins og er núna, af því að það er þensla, en það eru blikur á lofti. Við skulum horfa til lengri tíma og það er jákvætt að fjármálastefna sé til fimm ára en það setur okkur líka í þá klemmu (Forseti hringir.) að við erum að binda næstu ríkisstjórn, sem er umhugsunarvert hvort við getum gert og við getum í rauninni ekki gert það. Það er samt engu að síður mjög jákvætt að hér sé reynt að líta til lengri tíma, (Forseti hringir.) en þá skulum við hafa áætlunina betri en þetta plagg sýnir okkur.