148. löggjafarþing — 15. fundur,  23. jan. 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í fjármálastefnunni þarf að vera áætlun um þróun eigna, sem hún inniheldur ekki. Það er eitthvað sem stofnefnahagsreikningurinn sem við tölum um seinna getur alla vega hjálpað okkur rosalega mikið með.

Ég talaði um það fyrr að við vitum að það er uppsöfnuð fjárfestingarþörf. Það var farið yfir það á málþingi fyrir nokkrum mánuðum, fyrir kosningar, hver væri uppsöfnuð fjárfestingarþörf í hinum ýmsu geirum. Það væri a.m.k. hægt að nota þær vísbendingar sem komu þar fram. Það voru gefnir út ákveðnir flokkar, A og B o.s.frv., að stefnan sé að fara á þessu tímabili í næsta flokk fyrir ofan eða minnka uppsafnaða fjárfestingarþörf í þessa átt eða um þetta hlutfall, eitthvað því um líkt. Mér finnst þarna vera glatað tækifæri að einhverju leyti. En það er spurning hvort við getum fengið fleiri hugmyndir og vangaveltur um þetta í áliti meiri hlutans varðandi fjármálastefnuna eftir því sem við tökum þetta til umfjöllunar í nefndinni.