fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ekki ætla ég nú að gera lítið úr framtaki hins gamla Framsóknarflokks sem hafði virkilega stóra og sterka félagslega taug, (Félmrh.: Og hefur enn.) sem mér finnst svona hafa verið að bresta síðari árin en vonandi kemur hún aftur.
Hvað varðar breytingar sem voru gerðar í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur skulum við nú ekkert gleyma þeim fordæmalausu aðstæðum sem voru þá. Það er í rauninni verið að drepa málinu á dreif þegar menn ætla að gleyma því að það hafi orðið hér eitt stykki efnahagshrun.
Við vorum fremst en við erum lökust núna. Svíar, Finnar, Danir, Norðmenn og Færeyingar gera miklu betur en við. Það er ekki eftir neinu að bíða. Jú, við skulum fara í þetta saman en við skulum ekkert að gera þetta að neinni skiptimynt. Förum bara og samþykkjum þetta núna.