fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég vil nú ekki meina að það sé mikill klofningur í þingflokki Pírata í þessu máli. Hv. þm. Halldóra Mogensen var að fjalla um annað efni en ég þótt það tengist þessu. Þegar maður gerir ráð fyrir einstæðum foreldrum breytast þau rök aðeins.
Ég geri ráð fyrir að hægt sé að finna lausn á því, t.d. ef annað foreldrið getur t.d. afsalað sér þessum afskiptum alfarið, sem er auðvitað ekki gott en það gerist samt sem áður.
Ég hygg að það sé alveg hægt að koma til móts við fólk í þeim tilvikum þótt það sé ekki valkvætt þegar tveir foreldrar eru til staðar. Þegar annað foreldrið er með lægri tekjur, sem er yfirleitt konan, tekur það foreldri alltaf orlof meiri hluta tímans. Þá myndast ójafnvægi. Ég velti fyrir mér: Þegar maður eignast barn er ekkert valkvætt. Maður missir alls konar frelsi, maður missir alls konar hluti. Það er ekkert valkvætt. Maður fær ekki að ráða öllu í kringum það. Ég skil ekki alveg af hverju við ætlumst til þess að við ráðum þessu endilega hvert og eitt þegar um er að ræða nokkuð sem er ekki valkvætt, (Forseti hringir.) sem er að hugsa um barnið sitt á fyrstu stigum lífs þess.