skilyrðislaus grunnframfærsla.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skemmtilegt svar því að það leiðir í ljós að hv. þingmaður hefur ekki kynnt sér hugmyndir um borgaralaun nægilega vel. En þetta er mjög algengur misskilningur og er einmitt ástæðan fyrir því að það verður spennandi að fara í þessa rannsókn og opna á umræðu. Til dæmis hefur Milton Friedman — er hann ekki eins konar guðfaðir frjálshyggjunnar? — kallað þetta neikvæðan tekjuskatt. Sem eru borgaralaun, þetta er sami hluturinn. Þetta er bara persónuafsláttur sem greiddur er út til þeirra sem ekki nota hann. Hinir fá ekki þann pening. Það er það sama með borgaralaunin. Ef maður er með háar tekjur tekur maður ekkert úr sjóðnum, maður leggur inn í hann. Þetta er bara spurning um að skapa gólf, öryggisnet fyrir fólk til að standa á þannig að það hafi tryggða grunnframfærslu sem veitir því frelsi til að geta lifað lífi sínu eins og því hugnast. Á sama tíma tökum við mjög flókið og þungt kerfi og einföldum það alveg svakalega og gefum fólki stjórn á eigin lífi.
En þetta er aldrei spurning um að þeir ríku fái peninga úr einhverjum sameiginlegum sjóðum því að þeir sem eiga peninga eru greinilega alltaf að borga til baka.
Ef við viljum líta á þetta á þann hátt að persónuafsláttur yrði hækkaður í einhvers konar grunnlaun, myndu þeir sem hafa ekki vinnu fá peninginn greiddan og aðrir myndu greiða skatt. Það er „negative income tax“ eins og Milton Friedman kallaði það.