þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta.
Herra forseti. Það var kannski niðurlag hv. þingmanns sem segir kannski það sem segja þarf í framhaldinu af þessu, það þarf líka að nást samkomulag á milli aðila vinnumarkaðarins um að gera þurfi átak hjá þeim starfsgreinum og stéttum þar sem konur hafa dregist aftur úr og þær eru í meiri hluta innan viðkomandi starfsgreinar. Þær starfsgreinar eru fjölmargar og ekki eingöngu heilbrigðisstéttir og kennarar. En innan þeirra stétta er auðvitað líka óeðlilegur launamunur og viðkomandi störf ekki metin að verðleikum. Við þekkjum það. Við þurfum að halda utan um það.
Ég held að margt þurfi að koma til. Ég held að það að afnema launaleynd sé hluti af því, að vinna gegn mismunandi mati á vinnu karla og kvenna, það skipti miklu máli. En svo kemur auðvitað margt annað til. Það er þessi eilífa togstreita og höfrungahlaup sem hefur verið talað um innan vinnumarkaðarins. Ef reynt er að lyfta þeim lægst launuðu og þeim sem eru með óeðlilegan samanburð í launum, körlum og konum innan sömu starfsstéttar, þá virðist allt módelið fara af stað. Það virðist sem hvorki innan verkalýðshreyfingar né innan Samtaka atvinnulífsins hafi menn kjark til þess að standa í lappirnar og segja: Við ætlum að leiðrétta þessa hópa sérstaklega núna.
Ef við ætlum að ná einhverju vinnumarkaðsmódeli eins og því sem gildir á Norðurlöndunum og hafa allan samanburð í þeim farvegi að við séum samanburðarhæf við Norðurlöndin í velferðarmálum þá verðum við að vera búin að lyfta (Forseti hringir.) þessum stéttum upp áður en við tökum það skref.