málefni LÍN.
Virðulegi forseti. Hér er greinilega um að ræða aðkallandi vanda sem við höfum mörg í huga vegna þess að ég er með svipaða fyrirspurn og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var með. Mig langar að beina fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra Lilju Alfreðsdóttur um málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Að undanförnu hafa stúdentaráð og önnur samtök námsmanna vakið myndarlega athygli á þessu máli. Ég sleppi fyrstu spurningunni því að hún kom fram hér áðan og varðar hvenær standi til að skipa í nýja stjórn sjóðsins. Ég minni þó á að það snýst kannski ekki bara um gamaldags pólitík heldur snýst þetta um líf og kjör ungra fjölskyldna í landinu.
Mig langar að heyra skoðun hæstv. ráðherra á framfærslunni, hvort henni þyki það forsvaranlegt að námsmenn lifi á 177.000 kr. áður en skerðingar hefjast. Í því sambandi er vert að rifja upp að frítekjumark námsmanna hefur ekki hækkað síðan 2014. Í því samhengi er líka rétt að muna að einungis 9% námsmanna við HÍ fá inni á stúdentagörðum, aðrir þurfa að reiða sig á almennan leigumarkað eins og ástandið er þar. Framfærslan er sem sagt langt undir tekjuviðmiðum velferðarráðuneytisins. Þessi lága framfærsla og þetta lága frítekjumark festir námsmenn í vítahring því að þeir þurfa sífellt að vinna meira fyrir sér með náminu sem er þó full vinna eins og við vitum.