málefni LÍN.
Virðulegi forseti. Það gleður mig verulega hversu mikinn áhuga þingheimur hefur á Lánasjóði íslenskra námsmanna. Það er alveg rétt sem hér kemur fram, það skiptir gríðarlega miklu máli hver umgjörðin er. Sér í lagi að allir hafi jafnan rétt til náms.
Hvað varðar fyrirspurn hv. þingmanns um framfærsluna er það að sjálfsögðu markmið þessarar ríkisstjórnar að bæta kjör íslenskra námsmanna og styrkja alla umgjörðina í kringum það. Það er stórmerkilegt að við, löggjafinn, höfum ekki náð að klára endurskoðun á heilum átta árum. En ég get fullyrt að þessi ríkisstjórn mun klára þá endurskoðun. Við munum líka vera í mikilli samvinnu við námsmannahreyfinguna. Þess vegna höfum við líka verið að undirbúa mjög vel hverjir koma að verkinu og hvernig við gerum þetta. Lögð verður sérstök áhersla á samvinnu og samráð við námsmenn og alla sem koma að þessu máli því að það gekk ekki nógu vel síðast. Af því vil ég læra sem ráðherra.