staðsetning þjóðarsjúkrahúss.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir umræðuna. Hæstv. ráðherra fór mjög vel yfir áherslur málshefjanda og tímaferlið, bæði umræðunnar um staðsetningu og ákvarðana þar að lútandi, sem spannar hartnær tvo áratugi.
Á þeim tíma hafa fjölmargir aðilar, og pólitíkin þar með talin, ítrekað stutt þessa ákvörðun. Ég get ímyndað mér að það sé lýjandi að hlusta á pólitíkina ákveða að gera eitt með því að samþykkja uppbyggingu við Hringbraut og segja stöðugt annað; annan stað, nýjan spítala, gegn þeim ákvörðunum sem þegar hafa verið teknar, fremur en að klára áform um bætta aðstöðu.
Þetta verkefni hlýtur að snúa að því að bæta starfsaðstöðu og burði Landspítala þannig að hann sé í stakk búinn til að veita bestu mögulegu þjónustu, nýta þær byggingar sem fyrir eru. Það er hagkvæmasti kosturinn.
Það er staðreynd að bætt aðstaða og uppbygging á spítalanum þolir ekki bið, þolir ekki frekari óvissu sem skapast m.a. af pólitískri umræðu. Það þýðir auðvitað ekki að um langa framtíð verði ekki byggður nýr spítali á nýjum stað. Það er væntanlega skynsamlegt að huga fyrr en seinna að næsta spítala en klára fyrirhuguð áform um uppbyggingu aðstöðu, innviða og tækja í samræmi við áætlanir.
Núverandi hæstv. ríkisstjórn hefur mikinn metnað í heilbrigðismálum og staðfestir það í stjórnarsáttmála þar sem m.a. skal hefja framkvæmdir við nýjan meðferðarkjarna Landspítala nú í sumar.
Ég fagna þeim áformum sem eru í takti við ályktun Alþingis frá 2014 um að fela þeirri ríkisstjórn sem ég átti aðild að að ljúka undirbúningi á endurnýjun og uppbyggingu Landspítala við Hringbraut. Við það eigum við að standa.