148. löggjafarþing — 17. fundur,  25. jan. 2018.

staðsetning þjóðarsjúkrahúss.

[11:20]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda þarfa og góða umræðu. Það er ekki að ástæðulausu sem hún kemur upp hér og nú. Auðvitað dylst það engum að við viljum eiga alvöruháskólasjúkrahús. Við viljum virkilega byggja þannig til framtíðar að allir geti við unað og allir geti nýtt sér þá þjónustu sem sjúkrahúsinu okkar ber að veita okkur.

Ég heyrði hæstv. heilbrigðisráðherra tala um að þessi ákvörðun hefði verið tekin fyrir 16 árum og að æ síðan hefði þetta verið að ganga í gegnum kerfið. En spurningin er hins vegar þessi: Hvaða forsendur lágu fyrir þeirri ákvörðun? Var það sú forsenda að fyrir mig t.d. sem bý í Grafarholti tæki það 45 mínútur á sjúkrabíl, ef ég myndi veikjast að morgni, að komast í þjónustu háskólasjúkrahússins? Það tekur mig 45 mínútur. Á kannski að fleygja mér í borgarlínuna af því að hún á að vera hraðleiðin niður á spítala fyrir mig? Ég segi bara: Það er alveg sjálfsagt, jafnvel þótt nú þegar sé búið að kasta milljörðum í skoðun á þessu máli að viðurkenna að hugsanlega sé um mistök að ræða. Allar forsendur eru brostnar. Það mun kosta mun meira að koma gatnakerfinu í almennilegt form þannig að við getum nýtt það og komist klakklaust á spítalann þegar við þurfum á að halda. Það væri vægast sagt hörmung ef sú staða, sem eflaust á eftir að koma upp að óbreyttu, kæmi upp að við sætum einhvers staðar föst í umferðinni og geispuðum golunni af því að við gætum ekki komist á sjúkrahúsið okkar.

Ég er ekki enn þá farin að tala um mygluvandann í þeim fermetrum sem hæstv. heilbrigðisráðherra nefndi áðan að við gætum nýtt. Hversu margir af þeim þúsundum fermetra eru skemmdir vegna myglu og verður botnlaus hít í framtíðinni að reyna að vinna úr?