148. löggjafarþing — 17. fundur,  25. jan. 2018.

norrænt samstarf 2017.

92. mál
[12:41]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferðina. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki lesið alla skýrsluna en hef gluggað aðeins í hana og leitað aðeins í henni. Það sem ég er að velta fyrir mér þessa dagana eins og margir aðrir er forsetaseta Donalds Trumps í Bandaríkjunum sem býr auðvitað til mjög mikið af vandamálum á eiginlega öllum sviðum sem snerta hans valdsvið, þótt víða væri leitað reyndar. Eitt af því sem við höfum lært á síðustu árum er að leyniþjónustur hinna ýmsu ríkja, sér í lagi Bandaríkjanna, hafa burði og getu og vilja til þess að beita aðferðum sínum gegn vinveittum ríkjum, svo sem Þýskalandi. Það er engin ástæða til að ætla að Ísland sé einhver undantekning frá því.

Reyndar hefur mér upp á síðkastið sýnst að það liggi á því að Norðurlöndin taki sig svolítið saman í upplýsingaöryggismálum og öryggismálum almennt, ekki einungis vegna þess að Donald Trump er forseti Bandaríkjanna, nógu slæmt var ástandið fyrir. Þá finnst mér við þurfa að hugsa um öryggishagsmuni okkar, sérstaklega upplýsingaöryggi og innviðaöryggi, aðeins víðar en út frá NATO. Þau lönd sem við eigum ótvíræða öryggishagsmuni sameiginlega með til langs tíma eru vitaskuld Norðurlöndin.

Þess vegna hef ég verið á þeirri skoðun að við eigum að efla sérstaklega tengsl okkar í varnarsamstarfi, upplýsingaöryggisvarnarstarfi, við Norðurlöndin. Við komum til með að hafa sameiginlega upplýsingaöryggishagsmuni með þeim til lengri tíma sem við höfum ekki endilega með Bandaríkjunum þótt þau séu mikilvægasti bandamaður okkar.

Ég sé við stutta leit í skýrslunni að það hefur verið rætt hvernig eigi að bregðast við forsetatíð Donalds Trumps, hversu stutt sem hún vonandi verður, og hins vegar að málefni öryggis þenjist út með nefndinni.

Mig langar að fá viðbrögð hv. þingmanns við þessum vangaveltum (Forseti hringir.) þótt ég viti að það séu kannski engin skýr svör í boði akkúrat núna.