norrænt samstarf 2017.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir afar áhugavert og gott andsvar. Fyrst langar mig til að segja að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð megináhersla á að efla norrænt samstarf, það er fyrsta setningin varðandi utanríkismál, þannig að ríkisstjórnin stendur þar saman. Þetta verkefni varðandi upplýsingaöryggi, ég tek undir það með þingmanninum, er afar mikilvægt mál. Ég sé að hér í salnum eru nokkrir fulltrúar úr Íslandsdeild Norðurlandaráðs. Við erum mjög opin fyrir því að taka á móti hugmyndum sem við getum tekið inn í okkar nefndir í Norðurlandaráði. Norðurlandaráð starfar í raun og eins og Alþingi. Þar erum við með flokkahópa, við erum með nefndir. Við Íslendingar getum lagt fram fyrirspurnir eins og hér. Við getum lagt fram þingmannamál og nýtt þennan norræna vettvang mjög markvisst. Það eru kannski ekki margir sem gera sér grein fyrir því hversu sterkur vettvangur Norðurlandaráð er fyrir okkur. Öll Norðurlöndin leggja mjög mikla áherslu á norrænt samstarf og finnst mikilvægt að það ekki bara haldi áfram heldur eflist.
Þetta er mjög aktúelt mál, ef ég má sletta, hæstv. forseti, upplýsingaöryggi og áherslan á það mun aukast næstu árin á erlendum vettvangi. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða. Ég þekki ekki alveg hversu langt þessi umræða hefur farið í Norðurlandaráði, en við þingmennirnir getum skoðað hvort hún hafi verið tekin og hvort það séu einhverjir ferlar komnir af stað eða verkefni innan Norðurlandaráðs. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góða ábendingu.