ÖSE-þingið 2017.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka forseta og hv. þm. Norðvesturkjördæmis, Guðjóni Brjánssyni, fyrir að liðka til hér varðandi dagskrána. Skýrsla ÖSE-þingsins fyrir árið 2017 er nokkuð ítarleg. Vil ég hvetja þingmenn til þess að fara í gegnum hana. Ég ætla að stikla á stóru í þessari skýrslu, ekki fara yfir hana orð fyrir orð.
Á vettvangi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE-þingsins, bar á árinu 2017 hæst málefni flóttamanna, hryðjuverk og átökin í Úkraínu. Einnig var mikið rætt um netöryggi, mannréttindamál í Hvíta-Rússlandi og átökin í Nagorno-Karabakh.
Flóttamannamálin voru efst á baugi, eins og ég sagði hér áðan, og ekki að ástæðulausu þar sem flestar þjóðir sem sækja þessi þing hafa á einn eða annan hátt reynslu af þeim mikla vanda sem fylgir átökum og stríðinu við botn Miðjarðarhafs, sérstaklega í Sýrlandi að sjálfsögðu.
Hryðjuverkaógnin var líka töluvert rædd þar sem nokkur stór ríki innan ÖSE-samstarfsins hafa orðið fyrir barðinu, ef það má orða það þannig, á hryðjuverkum og hafa lagt áherslu á að þetta sé rætt og reynt að koma í veg fyrir frekari stigmögnun eða þróun í þá átt. Í aukaályktun um aukið hlutverk ÖSE í baráttunni gegn hryðjuverkum voru aðildarríki ÖSE einnig hvött til að hamla för grunaðra hryðjuverkamanna milli landa og einnig takmarka flæði vopna og fjármuna yfir landamæri.
Það er mjög mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að horfa til þess og læra af því hvernig best er að standa að því að koma í veg fyrir peningaþvætti og þess háttar, þ.e. að íslenskt fjármálakerfi sé notað til þess að flytja fjármuni sem koma frá glæpamönnum eða hryðjuverkahópum o.s.frv.
Á ársfundinum hvatti ÖSE-þingið til þess að hernaðaraðgerðir í Úkraínu yrðu stöðvaðar og að rússnesk stjórnvöld drægju til baka innlimun Krímskaga. Þá var mikið rætt um málefni Úkraínu og Rússa í almennum umræðum og einnig var ályktað um ferðafrelsi eftirlitsstofnana ÖSE á svæðinu. Átökin í Nagorno-Karabakh voru sömuleiðis áberandi í almennum umræðum og í ályktun ársfundar eru átakaaðilar hvattir til að hefja án tafar friðarviðræður.
Töluvert var rætt um netöryggi og að sjálfsögðu líka hvernig netmiðlar eru notaðir til þess að dreifa óhróðri eða fölskum fréttum eða hvað við köllum það.
Síðast var ársfundurinn haldinn í Minsk í Hvíta-Rússlandi árið 2017 og var staðsetning fundarins hvati að aukinni umræðu um mannréttindamál í Hvíta-Rússlandi þar sem dauðarefsingar eru löglegar enn þá. Hefur forseti landsins, Lukashenko, verið uppnefndur eini einræðisherrann í Evrópu af vestrænum fjölmiðlamönnum. Það var alveg ljóst að þó Hvít-Rússar væru mjög gestrisnir og allt gengi þetta mjög vel þá hafði hún töluverð áhrif á þá þessi umræða sem þarna fór fram, sem var að sjálfsögðu af því góða.
Í öðrum lið í skýrslunni er fjallað almennt um ÖSE-þingið. Þetta er Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu sem starfar á grundvelli Helsinki-sáttmálans og er frá árinu 1975. Með Helsinki-sáttmálanum skuldbundu aðildarríkin sig til þess að bæta samstarf sín á milli, virða landamæri hvert annars og tryggja mannréttindi íbúa sinna. Lagalega séð er Helsinki-sáttmálinn hins vegar ekki hefðbundinn sáttmáli þar sem hann er ekki staðfestur af lögþingum í löndum þeirra þjóðhöfðingja sem undir hann skrifa.
Síðan er farið hér yfir hlutverk ÖSE-þingsins, en það er m.a. að hafa áhrif á stefnumótun og áherslur í starfi ÖSE. Það eru nokkrar málefnanefndir sem starfa á vettvangi ÖSE-þingsins. Málefnanefndirnar eru nefnd um stjórnmál og öryggismál, nefnd um efnahags-, vísinda-, tækni-, og umhverfismál og nefnd um lýðræðis- og mannréttindamál sem er svokölluð 3. nefnd.
Í 4. kafla þessarar skýrslu er farið yfir fundi ÖSE-þingsins. Þingið kemur saman til reglulegra funda þrisvar á ári. Yfirleitt er vetrarfundur haldinn í febrúar, ársfundur að sumri, en síðastliðið haust 28. október var haldinn fundur í Andorra, en þann fund sóttu ekki fulltrúar Íslandsdeildarinnar vegna kosninga sem voru yfirvofandi eins og alkunnugt er.
Hér eru svo þessir fundir raktir. Það er fjallað um fundinn í Vín sem var 23.–24. febrúar 2017. Þar var enn og aftur verið að tala um baráttuna gegn hryðjuverkum, mannréttindi. Þar ræddum við líka loftslagsbreytingar, hvernig mætti takast á við þær og flóttamenn að sjálfsögðu. Það var sérstök umræða um vernd mannréttinda á álagstímum eins og það var orðað.
Á bls. 5 er svo fjallað meira um ársfundinn í Minsk og farið í gegnum þær umræður sem þar voru. Á þeim fundi tók m.a. Pawel Bartoszek, þáverandi þingmaður, til máls og einnig hv. þm. Halldóra Mogensen.
Á bls. 7 vil ég vekja athygli á ályktun um stærra hlutverk ÖSE í baráttunni gegn hryðjuverkum en þar voru aðildarríki hvött til þess að lögsækja þá sem tækju þátt í fjármögnun, undirbúningi og framkvæmd hryðjuverkaárása. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að koma í veg fyrir hryðjuverk með því að hamla för grunaðra milli landa og sömuleiðis flutningi vopna og fjármuna.
Almennt varðandi þessa fundi og varðandi ÖSE-þingið þá litast þær umræður sem þar fara fram og öll vinnan töluvert af átökum eða mismunandi áherslum ríkja, m.a. átökum milli ríkja sem eru innan ÖSE. Umræðan er því oft nokkuð staðbundin milli nokkurra landa eða fámennra hópa innan þingsins, en engu að síður er umræðan góð. Það kemur á daginn að margar skoðanir eru uppi á þessum málum. Þó svo að, ef við nefnum dæmi af handahófi, Rússar og Úkraínumenn takist á og ræði sín á milli á þessum fundum þá blandast aðrir inn í þá umræðu, því menn vilja að sjálfsögðu reyna að leysa þessi vandamál sem þar eru.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra um þessa ágætu skýrslu en hvet þingmenn til þess að kynna sér hana.