ÖSE-þingið 2017.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé alveg ljóst að hv. þingmaður veit miklu meira um hlutverkið en ég mun nokkurn tímann vita. Því miður get ég ekki svarað því mikið betur því að þann fund þar sem þetta mál var rætt sótti þáverandi hv. þm. Pawel Bartoszek, en ekki sá er hér stendur. Ég komst einfaldlega ekki á fundinn þannig að Pawel fór á hann fyrir mig. En almennt hefur umræða um netöryggi verið á þeim nótum sem Danir hafa talað um, þ.e. varðandi kvarða, sem ég get ekki því miður útskýrt nánar því að ég var ekki á fundinum. Rætt var að menn þyrftu að koma sér upp samræmdum stöðlum eða kvörðum sem þeir myndu meta og bregðast við út frá. Íslendingar eiga ekki að vera þar undanskildir, segi ég, vegna þess að við erum ekki síður berskjölduð fyrir þessum árásum en aðrir.