148. löggjafarþing — 17. fundur,  25. jan. 2018.

dánaraðstoð.

91. mál
[15:05]
Horfa

Una Hildardóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka flutningsmanni kærlega fyrir þessa yfirferð og framsögu. Mér finnst nálgun þingsályktunartillögunnar mjög áhugaverð og þá sérstaklega að athuga hvernig staðan er í öðrum löndum og sömuleiðis að í henni er mælt fyrir um skoðanakönnun meðal heilbrigðisstarfsmanna. Ég vildi spyrja þingmanninn út í það hvernig sú skoðanakönnun er hugsuð. Erum við að tala um heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með öldruðum eða langveikum? Hefur þingmaður leitt hugann að t.d. starfsmönnum sem vinna með andlega veikum einstaklingum? Hefur sú hugmynd komið upp að leita einnig til starfsmanna geðdeildar Landspítalans eða annarra heilbrigðisstarfsmanna sem vinna með einstaklingum sem glíma við andleg veikindi?