148. löggjafarþing — 18. fundur,  30. jan. 2018.

staðsetning nýs Landspítala með tilliti til samgangna.

[13:48]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Alþingi nýtur ekki mikils trausts hjá þjóðinni og er það miður. Það er hlutverk okkar sem hér erum að bæta úr því en í þessu sambandi vil ég benda á eitt mál. Í stefnuskrá Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar segir, með leyfi forseta:

„Framsókn vill hefja undirbúning að nýjum Landspítala á betri stað. Framtíðarstaður spítalans er ekki við Hringbraut. … Það þarf að huga tímanlega að því að nýr spítali verði byggður á nýjum stað …“

Í maí 2016 var formaður Framsóknarflokksins og þá starfandi forsætisráðherra spurður hver afstaða hans væri til byggingar nýs Landspítala. Hann svaraði, með leyfi forseta:

„Það er mjög álitlegt að byggja nýjan Landspítala annars staðar, t.d. á Vífilsstöðum.“

Í október 2016 boðaði Framsóknarflokkurinn til blaðamannafundar, fundurinn var haldinn rétt við Vífilsstaði. Formaður flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, segir, með leyfi forseta:

„Hringbraut er óheppilegur staður. Okkur finnst skynsamlegast að setja af stað óháða úttekt, m.a. með aðkomu erlendra sérfræðinga, um hvort ekki sé hægt að byggja nýjan spítala á nýjum stað, betri stað, hraðar og betur en núverandi áform eru uppi um. Okkur finnst það einfaldlega skynsamlegt.“

Blaðamaður spyr, með leyfi forseta:

„Verði Framsókn í ríkisstjórn, hver verða ykkar fyrstu skref í þessu máli?“

Formaður Framsóknarflokksins svarar, með leyfi forseta:

„Að setja á laggirnar þennan óháða hóp.“

Framsókn varð að ósk sinni ári síðar og settist í ríkisstjórn, skrifaði upp á stjórnarsáttmála um að nýjan Landspítala skyldi byggja við Hringbraut og felldi breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið um að setja af stað óháða úttekt á byggingu nýs Landspítala á nýjum stað.

Ég vil spyrja hæstv. samgönguráðherra og formann Framsóknarflokksins:

Telur hann að það hvernig hann og hans flokkur hefur haldið á þessu máli sé til þess fallið að efla traust á stjórnmálum?