148. löggjafarþing — 18. fundur,  30. jan. 2018.

staðsetning nýs Landspítala með tilliti til samgangna.

[13:52]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Þetta var afar athyglisvert svar. Ég verð að spyrja hæstv. samgönguráðherra, fyrst hann er alveg á því að byggja nýjan spítala, nýtt þjóðarsjúkrahús, á nýjum stað, hvers vegna hann greiddi þá atkvæði gegn breytingartillögu minni við fjárlagafrumvarpið þess efnis að setja á laggirnar starfshóp til að fara í staðarvalsgreiningu, eins og hann sagði réttilega á þeim blaðamannafundi sem ég vitnaði til. Síðan fer hann í það ríkisstjórnarsamstarf þar sem er fallið frá því að byggja þjóðarsjúkrahúsið á nýjum stað, þannig að ég skil ekki alveg þetta svar. Alla vega væri gott að fá þá fram hvers vegna hann greiddi atkvæði gegn þessari tillögu en vill samt sem áður fara í að skoða þetta.