148. löggjafarþing — 18. fundur,  30. jan. 2018.

staðsetning nýs Landspítala með tilliti til samgangna.

[13:53]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Í fyrri fyrirspurn sinni lagði hv. þingmaður út frá því hvað snerist um traust. Og hvernig almenningur horfði til starfa okkar á þinginu. Einn liður í því er að þegar menn taka stórar ákvarðanir reyna þeir til hins ýtrasta að ná breiðri sátt um þær. Að taka ákvörðun um byggingu á nýju þjóðarsjúkrahúsi er umtalsvert stór ákvörðun sem því miður hefur verið í skotgröfunum mjög lengi. Ég tel mikilvægt að um slíka ákvörðun geti ríkt þverpólitísk sátt. Hv. þingmaður bar þessa tillögu upp sem breytingartillögu við 2. umr. fjárlaga án þess að hafa tekið neina umræðu hér í salnum eða í nefndum þingsins um hvort þetta væri skynsamlegt og hvernig eigi að standa að því. Væri ekki ágætt að gera það á næstu þingum, taka þessa umræðu, finna hina skynsamlegu leið og sýna almenningi í landinu að við kunnum að vinna saman og þannig byggja upp traust hvert á öðru og almennings á okkar störfum?