148. löggjafarþing — 18. fundur,  30. jan. 2018.

birting dagskrár þingfunda.

[14:09]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Fundarstjórn forseta er með miklum ágætum. Ég sé að hér er allt með sóma og miklum og góðum brag. Ég vil beina því til þingmanna sem koma upp og gagnrýna forseta Alþingis, hver sem það er á hverjum tíma, fyrir að hafa dagskrána ekki tilbúna fyrr að líta aðeins í eigin barm vegna þess að þegar þingflokkar og þingmenn koma sér saman um hversu lengi þeir ætli að tala í einstökum málum, hversu langan tíma þeir áætla í tilteknar umræður, verður hægt að setja dagskrá þingsins upp með miklu betri og skilvirkari hætti en hægt er nú þegar ekkert slíkt samkomulag eða samræður standa yfir á milli þingmanna.

Nú hef ég nýtekið sæti á þingi og þekki ekki alveg hvernig dagskrá þessarar viku var undirbúin en ég sá dagskrá dagsins í dag í gær og gat þess vegna undirbúið mig með miklum brag, eins og sjá má á eftir.