148. löggjafarþing — 18. fundur,  30. jan. 2018.

birting dagskrár þingfunda.

[14:14]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti þakkar þessa gagnlegu og hjálplegu umræðu um betra skipulag á þingstörfunum og tekur það allt til skoðunar og greina. Ég vil þó nefna að ein ástæða þess að ekki lá fyrir hvaða þingmál eða þingmannamál yrðu á dagskrá á morgun er sú að þingflokksformenn fengu tölvupóst fyrir helgi þar sem þeir voru beðnir að tilgreina forgangsmál síns þingflokks. Og líti nú hver í eigin barm, þar á meðal formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar, og rifji upp hvort þeir hafi verið búnir að svara þannig að við hefðum getað sett það fyrr á dagskrána hvaða mál það yrðu.